Today was a good day, i didn't even have to use my ak..

Who's got the keys to my bíma?

23.05.2008 20:31:41 / catmaster

Ég og Thom Yorke..

vorum eitthvað skotin í hvor öðru í nótt. Alveg hel langur draumur. Hann er uppáhalds tónlistarmaðurinn hans Krissa, hver er sálfræðilega merking þessa
(Trína kannski?) Annars var ég kaupa mér ansi fine gallabuxur, rassinn á mér hefur eitthvað skellt sér til Magaluf, er allvega ekki viðlátinn í þessum buxum. Thom Yorke, meiri kallinn:) Er hann giftur eða er hann kannski í alvörunni að spá í mig?:) Maður hefur nú fengið skilaboð frá einhverjum multicultural öfugbósum hvaðanæva að, Thom kallinn má alveg nota myspeisið til að senda mér línu um sitt tilfinningalíf almennt.Ég er semsagt grasekkja í kvöld.Og krissi fór út í svo fínum fötum að hann verður tekinn í bóndabeygju og nýrnanúning af hverjum einasta kvenmanni sem vinnur með honum, á þessari uppskeruhátíð. Hann Krissi er alltof huggulegur. nú mun eg horfa á gone baby gone, tja eins og rassinn á  mér í þessum nýju brókum, ekkert smá viðeigandi. Góðar stundir.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.