02.09.2008 19:28:48 / catmaster
Ég vil fá Ómar Ragnarsson í ammælið mitt til þess að syngja fyrir mig Jóa útherja.Afhverju ætti það ekki að vera gerlegt. Ég hef eiginlega bara einu sinni verið star-struck.Það var á opnun á myndlistarsýningu með klippimyndum Sigríðar Níels í tólf tónum.Ég þorði ekki að yrða á hana og ef ég man rétt alls ekki að sitja við hliðina á henni.Einu sinni ætlaði ég svo að borga í stöðumæli fyrir Ómar Ragnarsson þar sem hann var að munda klink í rifuna á stæði við hliðina á mínu.Smá þakklætisvottur fyrir þessa kassettur sem ég mundaði stöðugt og söng með og mótaði persónuleika minn jafn mikið og fjölskyldan,vinirnir i Dalalandinu,breikpinnar,Glætan,tyggjóís,smjattpattarnir og epladjúsdrykkja kl. 3 á næturnar,hugvekjur, fjör á fjölbraut, Katla María, þjófhræðsla, pósturinn Páll og kötturinn Njáll og hringeferðir á rauða járn þríhjólinu sem ég man ekki lengur hvað hét. Annars er ég einhverskonar secret agent þessa dagana.Eins konar cancer man.Allavega góðar stundir.....
»
13.06.2008 23:02:46 / catmaster
var greinilega of mommish a[ folk bara klora[i ser i haus e[a hugsa[i eitthva[ um at eg aetti ad slaka 'a i a[ hverjum tykir sinn fugl fagur. Siminn minn er allt i einu andsetinn, /a[ stendur 1000*7 000 7 'a skj'anum. Tetter ekkert sm'a Bondlegt. Get ekki svara[ og ekki sed hver hringdi fyrr en ca halftima eftir hringinguna og afhverju er hann fokkt} Aftvi eg leyfi barninu at hafa hann upp i ser og slebbal'iusa inn'i hann eins og tad se keppnisgrein 'a 'olymp'iuleikunum. Gud er ekki til v'ist 'isbj-rninn var skotinn af rednekkum og Gullfingurinn f'ekk 9 millur i v=lotto. Annars er eins helmingurinn af h'umornum minum hafi farid upp til guds med pabba. Eg er kannski eitthvad odruv'isi en eg var fyrir tessa helgi tegar Erlingunum minum var skipt 'ut.
Alb'umid okkar er her"
http://gallery.mac.com/kristjan_recorder#gallery
G'odar stundir
»
08.06.2008 01:35:37 / catmaster
einfaldir. Því að þeirra er guðs ríki. En já. Í dag fór ég í monsoon rigningu stormandi með einkasoninn og mýri í skónum að sjá Gylfa Ægis og undarlega son hans í Máli og menningu að performa. Jah...það vantaði eitthvað smá uppá öryggið hjá þeim, krádið kannski ekki heldur beint að rjóma á sig af grúppíulátum eða grýta í þá eigin nærbuxum. En það sem ég er víst að missa af sem er eitthvað crazy beautiful er leikmyndin eða barinn í the good heart, Vonandi get ég séð hann á morgunn. En vá allir sem heita Erlingur eru æði

Kona nokkur á skjóli áðan með Alzheimer sagði að hann væri bara fallegasta barn sem hún hefði séð og hvað hann yrði stjarnfræðilega umvafinn kvenfólki í framtíðinni. Og ég var bara já ég veit, ég var einmitt að kaupa einn bleik sanseraðan Smith&Wesson með majonessprautu til að úsa á glyðrurnar sem vilja ólmar gera mig að ömmmu vaknar og sofnar!! Ekki núna glyðrur!!! Ég er hérna að segja honum syni mínum nokkra vel valda brandara! Hunskisti heim að horfa á Cosby -show eða eitthvað! Gefiði prinsi smá breik! Hann þarf svigrúm til að setja á sig gúrkumaska og líta í spegil. Og ég er alltaf að fá að heyra svona setningar einhverjar. Er hann ekki eitthvað óvenjulega sætur og eitthvað svona. Og þetta sama góða fólk hefur ekki einu séð hárið hans eða séð hann hlægja. Að láta hann hlægja er fallegasta iðja sem ég get ímyndað mér og fokk! honum finnst ég sko fyndin! Scheisse ganz viel scheiz fyndin...það verður skrítið að heyra hann segja orð í framtíðinni.....En já yfir og út, allir gengnir til náða hér..
»
26.05.2008 23:26:26 / catmaster
»
23.05.2008 20:31:41 / catmaster
vorum eitthvað skotin í hvor öðru í nótt. Alveg hel langur draumur. Hann er uppáhalds tónlistarmaðurinn hans Krissa, hver er sálfræðilega merking þessa
(Trína kannski?) Annars var ég kaupa mér ansi fine gallabuxur, rassinn á mér hefur eitthvað skellt sér til Magaluf, er allvega ekki viðlátinn í þessum buxum. Thom Yorke, meiri kallinn

Er hann giftur eða er hann kannski í alvörunni að spá í mig?

Maður hefur nú fengið skilaboð frá einhverjum multicultural öfugbósum hvaðanæva að, Thom kallinn má alveg nota myspeisið til að senda mér línu um sitt tilfinningalíf almennt.Ég er semsagt grasekkja í kvöld.Og krissi fór út í svo fínum fötum að hann verður tekinn í bóndabeygju og nýrnanúning af hverjum einasta kvenmanni sem vinnur með honum, á þessari uppskeruhátíð. Hann Krissi er alltof huggulegur. nú mun eg horfa á gone baby gone, tja eins og rassinn á mér í þessum nýju brókum, ekkert smá viðeigandi. Góðar stundir.
»
10.05.2008 21:17:09 / catmaster
Goodyear dekk eða lífrænn úrgangur manna?Meltingarvegurinn þarf allavega ekki að gera mikið að eiga við þetta ofbeldi áður en hann skilar því í vota gröf. Ég sem hélt að allir hamborgarar myndu skreppa saman á pönnuni en sææælll.Rubbar því skelfilega inn að maður sé ekki grænmetisæta

Annars ætla ég bara að sitja hérna og sjúga innihaldið úr glowstickinu mínu og gá hvaða góðu hugmyndir ég fæ.......ranghugmyndir kannski
»
06.04.2008 23:08:31 / catmaster
með óstöðvandi hárlos, hef ekki verið léttari í nokkur ár, eitthvað illt í maganum, semsagt magasjúklingur með illt í bakinu.Ég ætti eiginlega að éta pulþur me rjóma í öll mál. eins gott að ég er ekki á kjötmarkaðinum þessa dagana

Eitthvað yrði maður nú valin seinastur í fótboltaliðið. En þetter fínt. Byrja að venjast því að eldast og hárið að þynnast. Hárlosið er víst mjög algengt ca 4-6 mán eftir fæðingu.Þannig að maður eignast voða mikið krútt, en verður í staðinn sjálfur eins og tja...mér er bara orða vant Addams-family-Gollum-með smá...nei bara orða vant.Who gives um útlit anyway...
»
02.04.2008 23:11:46 / catmaster
sem vilja fá slóðina á myndablogg Erlings/ okkar sendið mér línu á myspace eða katriner@hi.is

verð aðeins áfram á þessu glöggi,hvernig setur maður teljara inná þetta nýja blogcentral bullerí?veit einhver?
file:///Users/kristjaneinarsson/Pictures/iPhoto%20Library/Modified/2008/mars%202008_3/L1050897.JPG
»
14.03.2008 23:00:46 / catmaster
Gettuh fokking betur! hvað ég er komin með leið á Menntaskóla-görgum öll í kór eitthvað sem rímar jibberish-krotum á bringuna á okkur-hormóna-trivial pursuit bulli. Og fabjúlus skemmtiariðum á milli. Og skemmtatriðum sem þetta í kastljósi: Eyvi með krippu eða engan háls(fer stundum saman) situr á barstól og koverar Eagles lag (bætir það ekki upp með sjarma eða andliti sem stirnir á beinlínis). Á barstólum sitt hvoru megin Davíð Smári Idolstjarna sem bakraddasöngvari hjá bakraddasöngvara sem tekur kover lag og á hina höndina Sigurjón einhver Brink í Mótorfötum. Já Krissi minn dæsti húsfreyjan á Ægisíðunni,það er þá svona sem það er umhorfs í helvíti, auk þess sem Guðlaugur Þór dansar við eld á þröngri speedo-skýlu.Hann ætlar nefnilega að segja upp faglærðum lykil stjórnendum á Landspítalanum og setja hægrisinnaða verðbréfamiðlara í þessar stöður. Dansi dansi dúkkan þín....Kannski Árni Johnsen fáist til að taka á móti barninu manns. Yrði tæplega verra en frænkan sem var viðstödd fæðingu Erlings. Mottulaus Hitler með norðlenskan hreim og sviðshaus í stað hjarta......kút. Að lokum ástarljóð
Ég teygi mig í bubblandi blóðhlaupið hjartað á þér
og treð því í ólgandi hnébuxurnar á mér
hvenær fórstu síðast í Eden?
Apinn þar gaf mér fingurinn
og sagði: komdekki hingað inn
þú ert glitský í augunum mínum
dögg í sumargrasi
íslenskt lambarsparð
sem gefur mér svo mikinn arð
í peningabréfum hjartans
stundum ég svamla í aur
en alltént ekki satans saur
íslendingar borða SS pylsur í E-den
um vor,ekkert slor...sveittur handakriki
skerumaf okkur spikið
og skellum því á malbikið
notum það sem trampólín
stuðpúði, allt nema lúði.
Fleira er ekki í þættinum i kvella..
»
16.02.2008 02:07:31 / catmaster
tvær myndir af Erlingi undir myndasöfn-fótós, check it
»
22.01.2008 23:20:16 / catmaster
ætlar enginn að bjarga Sirkus frá demolition í þessari óræðu heimskulegu sandkassa Júdasar borgarstjórn?...ég tek sem lítið dæmi (um fyrirsögnina að ofan) gufubaðið á Laugarvatni og gamla Ríkið á Seyðisfirði. Tveir mjög huggulegir og gamlir menningarkimar á landinu. Upp með gröfuskófluna og trasha því! Og svo gera einhverja slimy götumynd á Laugaveginum sem gerir Reykjavík eins og hverja aðra ljóta ósjarmerandi plebbalega meðalborg í heiminum. Kannski eins og Drammen eða Jönköping?
http://www.petitiononline.com/nogbodid/ komasso!
»
26.12.2007 04:07:58 / catmaster
og árið..ég er bloggeyðimörk
»
12.12.2007 15:43:39 / catmaster
er bestur og æði æði æði...góð lykt lykt....sæta menni með fínasta bros í heimi..2 b continued...með mynd etc..................veijó

Partíið er hafið,mæðginin að hlusta á boogie nights soundtrakkiðs, Elli múbb er diggin it.....veijó.Hér veri stuð!!!
»
21.10.2007 10:01:06 / catmaster
er þessi 21. október....Í dag á ég að kveljast í heitum potti, en svo verður gaman? Gerist ekki fyrr en eftir 2 vikur, veit það bara....kút
»
19.10.2007 04:43:48 / catmaster
Halló Euwe,þú hefur tekið frá mér sushi, reyktan lax og hráa skinku. En þú hefur líka tekið frá mér bjór- smakk og þynnku. Hver er undir teppinu var uppáhaldsleikurinn minn Euwe, en þú ert constantly undir mínu teppi.Komdu nú og sýndu þitt rétta andlit, vil sjá meira en fínu hælana í magavegg, komdu og borðaðu með mér bacon&egg. Ef þú ert eins og pabbi þinn ættirðu að spýta í lófa og renna þér út, því þá ertu ansi god damn cute. Ekki láta mig verða þyngri Euwe, það er algjört Harlem að geta sig lítið hreyft og fátt matarkyns keypt. Ef maður ætlar ekki að fá brjóstsviða eða æla, við setjum þig í silvercross og gefum þér mjólk að drekka, drífðu þig nú í pílagrímsferð þar sem Ægissíðan er Mekka. Roger?
»
Síður:
1 2 3 ...
22